Úrsagnir fara fram með því að smella hér og fylla út úrsagnarformið.
Úrsögn telst ekki gild ef hún er send með tölvupósti, í einkaskilaboðum til Lindu á samfélagsmiðlum eða eftir öðrum leiðum.
Mánaðaraðild er með þriggja mánaða lágmarksbinditíma. Að þeim tíma liðnum endurnýjast aðildin mánaðarlega þar til úrsögn berst. Úrsögn þarf að berast í síðasta lagi 25. dag mánaðar til að hún taki gildi um næstu mánaðamót. Berist hún eftir 25. dag mánaðar tekur hún gildi um þarnæstu mánaðamót og greiðsla fyrir næsta mánuð verður innheimt. Greiðslur sem þegar hafa farið fram eru ekki endurgreiddar.
Ársaðild gildir í 12 mánuði og endurnýjast sjálfkrafa um 12 mánuði í senn þar til úrsögn berst. Úrsögn tekur gildi við lok yfirstandandi aðildartímabils. Áminning er send með tölvupósti um það bil 30 dögum áður en ársaðild endurnýjast. Það er þó alltaf á þína ábyrgð að senda inn úrsögn innan tilskilins frests ef þú vilt ekki að aðildin endurnýist. Að áminning berist ekki breytir ekki úrsagnarfrestinum.
Úrsögn þarf að berast í síðasta lagi 25. dag mánaðarins á undan endurnýjunarmánuði. Berist úrsögn ekki innan þess frests telst það samþykki fyrir endurnýjun aðildarinnar um aðra 12 mánuði. Þegar ársaðild hefur endurnýjast er endurnýjunin bindandi og endurgreiðsla er ekki í boði.