Lífsþjálfunarfundir

LÍFSÞJÁLFUN GETUR BREYTT LÍFI ÞÍNU!

LMLP er lífsþjálfunarprógramm, það eina sinnar tegundar á Íslandi. Áhersla er lögð á hugsanavinnu og orsakaþjálfun með „Hugsa-Líða-Gera" hringrásinni þar sem unnið er með rót vandans en ekki bara afleiðinguna. Lífsþjálfunarfundir eru mikilvægur hluti af kennslunni í hverjum mánuði og það að fá lífsþjálfun (eða horfa á aðrar fá þjálfun) er mögnuð upplifun. Lífsþjálfun dýpkar skilning þinn og er mikilvægur þáttur í því að þú tileinkir þér breyttan hugsanahátt.

Þú getur tekið hvaða málefni eða vandamál sem er fyrir í lífsþjálfun, hvort sem það eru sambönd við aðra, líðan okkar í vinnunni, af hverju við gerum ekki það sem við ætluðum að gera eða að okkur finnst við vera fastar í tilbreytingalausu lífi. Við hjálpum þér að skilja málið, eflum þig í að finna lausnina sem hentar þér og styðjum þig í vinnunni til að ná þínu markmiði.

Taktu endilega fyrsta skrefið og óskaðu eftir þjálfun, stígðu út fyrir þægindarammann og upplifðu sjálf þessi mögnuðu fræði. Það eru mikil verðmæti í því að hafa aðgang að lífsþjálfun í LMLP. Það er gott að vera tilbúin með málefni sem þú vilt ræða og fá lífsþjálfun með en það er ekki nauðsynlegt.

 

ÓSK UM ÞJÁLFUN
Þú getur fengið þjálfun í beinni á lífsþjálfunarfundum Þú mætir einfaldlega á fundinn og réttir upp hönd. ýtir þú á “raise hand” eða merkið „rétta upp hönd". Það er neðst á zoomstikunni yfir “reactions”.

 

Engin truflun
Það er gott að vera á rólegum stað og vera viss um að það verði engin truflun. Gættu líka að því að hafa góða lýsingu og hljóð. Best er að hafa ljós framan við þig eða sitja við glugga þannig að birtan sé á andlitið á þér, ekki á hnakkann.

Lífsþjálfunarfundir eru 60 mínútur.

Vinsamlegast lesið!

Með því að taka þátt í fundum eða horfa á upptökur af þeim samþykkir þú að fara með allt sem fjallað er um sem trúnaðarmál. Fundir og upptökur af þeim eru einkamál og eingöngu ætlaðir aðildarkonum LMLP. Þér er ekki heimilt að deila því sem um var rætt eða deila upptökum af fundum með öðrum.

VIP fundir

VIP KONUR

Sérstakir VIP fundir eru í hverjum mánuði og eru einungis fyrir þær ykkar sem komnar eru í VIP áfanga. Þú kemst í VIP áfanga frá og með lotu 6 (ef þú greiðir mánaðarlega) eða ef þú ert með staðgreidda ársaðild.
Á VIP fundum köfum við enn dýpra í hugsa-líða-gera hringrásina, eða það sem við köllum H-L-G+ (plús) þar sem þið lærið enn áhrifaríkari leið til að útbúa þá niðurstöðu sem þið viljið í lífi ykkar. Lífsþjálfun er í boði á VIP fundum.
 

VIP fundir eru 60 mínútur.

Byrjendafundir 

BYRJENDAFUNDIR -fyrir byrjendur og lengra komnar. 
 
Á byrjendafundum er farið yfir hvernig LMLP virkar, hverju mælt er með að leggja áherslu á þegar þú ert að byrja og spurningum svarað í lok fundar. Það er mjög gott fyrir þær sem eru lengra komnar að mæta líka á byrjendafundi, það er ágæt upprifjun og gott að mæta alltaf með hugarfari byrjendans. Þannig færðu sem mest út úr efninu hér og ert því alltaf að læra eitthvað nýtt.

Fyrri hluta fundar er farið yfir hvernig LMLP virkar og síðari hluta er „Allt í boði". Þá er kveikt á myndavélum og hljóði hjá þeim sem það vilja. „Allt í boði", þýðir að þið ráðið og getið óskað eftir lífsþjálfun (án þess að senda inn ósk um þjálfun fyrirfram), spurt spurninga, deilt sigrum, fengið ráð o.m.fl. 

 

Byrjendafundir eru 30-60 mínútur.

Smella hér til að horfa á upptökur af fundum. ( Mánaðaraðild)
Smella hér til að horfa á upptökur af fundum. ( Ársaðild )

Algengar spurningar