Milljónaklúbburinn með viðskiptamentornum
og þaulreynda frumkvöðlinum Lindu Pétursdóttur.
Milljónaklúbburinn er sex mánaða mastermind fyrir metnaðarfulla fyrirtækjaeigendur sem vilja byggja upp fyrirtæki sem skilar stöðugum tekjum upp á eina milljón króna á mánuði.
Fáðu sæti við hringborðið með Lindu
og völdum hópi fyrirtækjaeigenda.
Af hverju Milljónaklúbburinn er öðruvísi
Reynslan sem mótaði hugmyndafræði Milljónaklúbbsins
Ég stofnaði fyrsta fyrirtækið mitt 22 ára gömul. Ég hafði metnað og mikinn vilja til að ná árangri en enga reynslu af rekstri. Eins og flestir fyrirtækjaeigendur lærði ég með því að taka ákvarðanir, gera mistök og halda áfram.
Í dag eru liðin rúm þrjátíu ár. Á þeim tíma hef ég byggt upp fyrirtæki, misst fyrirtæki í gjaldþrot og byggt upp aftur. Sú reynsla hefur kennt mér meira um fyrirtækjarekstur en nokkur bók eða háskólagráða gat nokkru sinni kennt mér.
Í gegnum árin hef ég valið mér mentora sem hafa sjálfir byggt upp öflug fyrirtæki. Fólk sem gengur á undan með fordæmi og sýnir með eigin árangri hvað er mögulegt.
Ég trúi því að besta leiðin til að læra sé af fólki sem hefur sjálft gengið leiðina sem ég vil fara. Þess vegna hef ég
sjálf fjárfest í mentorum og mastermind-hópum í gegnum árin.
Helstu áskoranirnar sem ég sé hjá flestum fyrirtækjaeigendum sem eru ekki enn komnir með stöðugar milljón króna í mánaðartekjur eru að:
…þeir eru sífellt að leita að næsta námskeiði, meiri upplýsingum, nýrri stefnu, sniðmátum, kerfum…
Mín eigin reynsla hefur hins vegar kennt mér ... að þetta snýst EKKI bara um stefnumótun
heldur er forysta lykillinn að sjálfbærum tekjuvexti. Að læra af leiðtogum og stíga
inn í leiðtogahlutverkið.
Ég trúi því að besta leiðin til að læra, sé af fólki sem hefur þegar fetað slóðina sem ég vil feta. Þess vegna hef ég sjálf fjárfest í mentorum og mastermind-hópum í gegnum tíðina.
Mig langaði að skapa mastermind fyrir íslenska fyrirtækjaeigendur sem byggir á sömu hugmyndafræði og hefur nýst mér best; leiðsögn frá mentor sem hefur sjálfur gengið leiðina og að fá sæti við hringborð með metnaðarfullum fyrirtækjaeigendum sem stefna hátt.
Þess vegna stofnaði ég Milljónaklúbbinn.
Skilaboð til þín frá mér
Smelltu á myndband til að horfa
Er Milljónaklúbburinn fyrir þig?
Þetta er eina mastermind sinnar tegundar á Íslandi sem sameinar grunnstefnumótun, módel sem auðvelt er að stækka eftir þörfum ásamt leiðtogaþjálfun í fámennum og sérvöldum hópi þar sem þú færð persónulega viðskipta- og leiðtogaþjálfun frá mér.
Milljónaklúbburinn er fyrir metnaðarfulla fyrirtækjaeigendur sem vilja byggja upp fyrirtæki sem skilar stöðugum tekjum upp á eina milljón króna á mánuði.
• Þú ert tilbúin/n að leggja vinnuna á þig.
• Þú tekur ábyrgð á eigin árangri.
• Þú vilt leiðsögn frá mentor sem hefur sjálfur gengið leiðina.
• Og þú skilur mikilvægi þess að sitja við hringborð með fólki sem er á sömu vegferð og þú.
Þess vegna þarf að sækja um sæti í Milljónaklúbbnum, því það komast ekki allir að.
Þetta er næsta skrefið þitt í átt að öflugri forystu og stöðugum tekjuvexti.
Miljónaklúbburinn hefst 9. september 2026.
Leiðin að milljón á mánuði:
Stefnumótun, skipulag og forysta
Fyrirtæki vex aldrei hraðar en manneskjan sem
leiðir það.
Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að fyrirtæki þróist í áföngum. Það sem þarf til að koma fyrirtæki af stað er sjaldan það sama og þarf til að byggja upp fyrirtæki sem vex, verður arðbært og skilar stöðugum tekjum til langs tíma.
Þess vegna sé ég fyrirtækjaeigendur oft leita að lausninni á röngum stað. Þeir fjárfesta í fleiri námskeiðum, nýjum markaðsaðferðum og fleiri verkfærum þegar það sem þarf að þróast er fyrirtækjaeigandinn sjálfur.
Leiðtoginn þarf að taka aðrar ákvarðanir, sýna meira hugrekki, framkvæma af meiri festu og hætta að bíða eftir því að verða tilbúinn.
Það sem kom fyrirtækinu þínu hingað mun ekki koma því á næsta stig.
Þess vegna tel ég að fyrirtæki þurfi ekki bara betri stefnu.
Þau þurfa líka betri leiðtoga.
Ég sá þörf fyrir svona mastermind á íslenskum markaði
og þess vegna útbjó ég Milljónaklúbbinn.
Lykilþættirnir 3
Aðalfókus Milljónaklúbbsins er á eftirfarandi lykilþætti:
Samfélag, samtal og þjálfun
Það sem við tökum fyrir:
Tekjuáætlun
Viðskiptaform
Hagnýtar aðferðir við að útbúa og miðla efni
Grunnur að persónulegu vörumerki
Hugarfar fjármála og forystu
Leiðtogahlutverkið
Lífsstíll og hár standard
Sjálfsmynd leiðtoga
NÆSTU SKREF til að skrá þig
Þess vegna er Milljónaklúbburinn aðeins opinn þeim sem sækja um.
Við leggjum af stað 9. september 2026.
Þetta er ekki námskeið með opna skráningu. Við veljum vandlega í hvern hóp til að tryggja að allir þátttakendur séu tilbúnir að stíga inn í sterkara leiðtogahlutverk. Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu þínu, hvernig staðan er í dag og hvaða áskorunum þú stendur frammi fyrir. Ef Milljónaklúbburinn er rétta næsta skrefið fyrir þig færðu boð um að halda áfram.
Fylltu út spurningalistann til að athuga hvort Milljónaklúbburinn sé fyrir þig.
Greiðsludreifing
69.000 kr.
Skipta greiðslum í níu hluta.
Staðgreitt
550.000 kr.
Eingreiðsla