Book a Class

Fréttabréf mánaðarins

 

Í lok hvers mánaðar sendi ég ykkur fréttabréf næsta mánaðar og þá daga sem fundur er sendi ég áminningu samdægurs nema þegar fundur er snemma dags, þá kemur áminning degi fyrr. Þetta er fréttabréf næsta mánaðar og eins og alltaf í okkar dásamlega samfélagi er margt spennandi á boðstólum.

Kæra LMLP kona

 

Nú er sumar á Íslandi, bjartar nætur og veðrið mis yndislegt eins og gengur. Margar munuð taka ykkur sumarfrí í júlí, fara jafnvel í ferðalag innanlands eða utan, til að njóta samvista við vini og fjölskyldu og njóta þess að vera úti í náttúrunni. Ég sit hérna í Marbella, læt sólina verma mig, hlusta á fuglasöng og hugsa hvað ég er þakklát fyrir fólkið í lífi mínu og ykkur allar mína kæru LMLP konur.Í júlí leggjum við í LMLP prógramminu áherslu á mannleg samskipti því þau eru jú ein  af grunnstoðunum sem við byggjum okkar tilveru á. Í júlí er því tilvalið að hægja aðeins á, njóta sumarsins og velja það sem nærir okkur. Velja af kostgæfni það sem við gefum athygli og spyrja okkur sjálfar í einlægni er þetta það sem ég vil? eða nærir þetta mig? 

 

Mig langar að hvetja þig, kæra LMLP kona til þess að njóta júlí mánaðar og njóta þess að velja þig. Gefðu þér tíma til að njóta þess að vera með því fólki sem lyftir þér upp. Veldu samskipti við vinkonuna sem fær þig hlæja, leyfðu fólkinu þínu að stjana við þig og mundu að það eru oft litlu augnablikin sem gefa okkur mest

 

Góð og gefandi mannleg samskipti byrja oft hjá okkur sjálfum og því langar mig að skora á þig að æfa þakklæti og æfa þig í því að sjá það góða. Hugsanir hafa vængi og ef við venjum okkur á að hugsa jákvætt þá líður okkur betur. Það þarf ekki að þýða að við hættum að setja mörk eða hættum að láta okkur varða um alvarlega hluti, það þýðir einfaldlega að við venjum okkur á að gefa því neikvæða sem verður á vegi okkar ekki mikla athygli.

 

Ég og teymið mitt erum komnar í sumarfíling enda styttist í sumarfrí hjá okkur. Eins og alltaf þá fer LMLP teymið í sumarfrí tvær síðustu vikurnar í júlí. Þá verður skrifstofan lokuð, en innri vefurinn er að sjálfsögðu áfram opinn allan sólarhringinn, alla daga ársins og þar er nóg af góðu efni til að næra sig á yfir sumarið.

 

Áður en við förum í sumarfrí ætlum við svo að eiga skemmtilega og gefandi stund saman því á fundinum 15. júlí í Lifandi samfélagi verðum við með kokteilboð. Ég hvet ykkur til að klæða ykkur aðeins upp, smella á ykkur varalit og mæta með litríkan drykk í fallegu glasi. Stundum er það einmitt hluti af sjálfsræktinni að leyfa sér að njóta og hafa gaman.

 

Ég hlakka innilega til að eiga með þér fallegan júlí þar sem við njótum sumarsins, hlúum að okkur sjálfum og veljum það sem lyftir okkur upp.

 


Hlý kveðja.
Ykkar, 

Linda Pétursdóttir

Eigandi og framkvæmdastjóri LMLP slf.
Master lífsþjálfi & viðskipta mentor
B.A í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði
Miss World 1988

Dagskrá í júlí

 

Í júlímánuður verður fullur af lífi og gleði hjá okkur í LMLP prógramminu.  Það verða lífsþjálfunarfundir og kokteilboð í lifandi samfélagi. Eins og alltaf þá tökum við okkur frí síðustu tvær vikurnar í júlí og komum endurnærðar til baka í byrjun ágúst.

 

Við hvetjum ykkur til að taka frá tíma til að mæta á fundina, hlusta eða taka þátt, því það er mikilvægur þáttur í vegferð ykkar að því lífi sem ykkur langar að lifa. Allir fundir eru teknir upp og settir á innri vef og þið getið hlustað á þá hvenær sem ykkur hentar, allan sólarhringinn, alla daga ársins.

    

Miðvikudagur 1. júlí kl. 12:00 

Lífsþjálfun

  

Miðvikudagur 8. júlí kl. 17:00 

Lífsþjálfun

 

Miðvikudagur  15. júlí kl. 17:00

Lifandi samfélag/kokteilboð

  

4 fundir á mánuði* eru innifaldir í áskrift, þar af 1 VIP fundur.
*fyrir utan júlí og desember vegna sumar- og jólafrís starfsmanna
 
Við viljum nota þetta tækifæri til að minna á að vengna sumarleyfis starfsmanna LMLP tvær síðustu vikur júlí mánaðar er skrifstofan lokuð og engir fundir eru í beinni þann tíma. 

Mannleg samskipti

 

Mannleg samskipti eru grunnurinn að því hvernig við tengjumst öðru fólki, sköpum traust og nánd. Það er mikilvægt, að huga að gæðum samskipta ekki síst á netinu þar sem gervigreindin er alltumlykjandi. Það er mikill munur á því að eiga í samskiptum við manneskju eða vélræn svör s.k. spjallmennis. sem getur svarað þér

 

Það er nefnilega eitthvað sérstakt sem gerist þegar við hittumst í raun. Þegar við horfum í augun á öðru fólki, hlustum á blæbrigðin í röddinni og finnum nærveru hvors annars verður tengingin dýpri. Mannleg samskipti snúast ekki bara um að skiptast á upplýsingum, heldur líka að finna tilfinningarnar og fá þann djúpa skilning sem svo oft verður aðeins til í raunverulegum samskiptum.

 

Í samskiptum lærum við líka meira um okkur sjálfar. Við æfum okkur í að hlusta, tala skýrar, sýna virðingu, setja mörk og vera einlægar. Það styrkir ekki bara tengslin við aðra, það hjálpar okkur að skilja okkur sjálfar betur og hvað við viljum.

 

Góð mannleg samskipti snúast því ekki um að segja alltaf hið fullkomna. Þau snúast um að hlusta, setja sig í spor annarra, setja heilbrigð mörk og sýna mildi. Mikilvægast er að vera við sjálfar, leyfa okkur að kynnast fólki og tengjast öðrum.

Þóra Sæunn Úlfsdóttir

 
 

Ég hef lært að gefa mér tíma til að vinna að breytingum- og að sýna mér mildi á breytingaferlinu.

 

Ég byrjaði hjá Lindu í maí 2022. Fyrst í HBOM (Hættu að borða of mikið), en fljótlega ákvað ég að LMLP prógrammið væri fyrir mig og byrjaði þar um haustið. Upphaflega skráði ég mig vegna þyngdarstjórnunar og það er enn eitt af verkefnum lífs míns.

 

Það mikilvægasta sem ég hef tileinkað mér er að gefa mér tíma til að vinna að breytingum og sýna mér mildi á breytingaferlinu. Það sem skiptir máli er að hafa úthald í ferlinu. Þar skiptir dagbókin miklu máli – að skrifa niður það sem ég stefni að og gefast ekki upp. Breytingar taka tíma. Ég nota mikið HLG (hugsa - líða -gera) og skrifa hjá mér það sem ég velti fyrir mér.

 

Annars er það svo margt sem ég hef bætt við mig. Sumt kunni ég áður, en myndin er miklu skýrari núna eftir vinnuna í prógramminu. Þar má nefna skipulag, að elska sjálfa mig, sjálfstraust, fegurð bæði utan og innan, og að velta fyrir mér hvaða kona ég vil vera í ákveðnum aðstæðum. Ég hef líka lært að vera hljóður leiðtogi í mínu eigin lífi. Ég væri til dæmis ekki að lesa sjálfshjálparbækur í dag ef ég hefði ekki farið í LMLP.

 

Það sem hefur breyst mest hjá mér er að læra hvað sjálfstraust er og hvernig ég get nýtt það í daglegu lífi. Ég hugsa líka meira um hvaða kona ég vil vera í dag og í þeim aðstæðum sem ég er að fara að takast á við. Ég hef ákveðið að draga úr því að vera óörugg. Áður komu oft upp hugsanir eins og: „Hvað vilja aðrir að ég geri?“ eða „Hvað finnst öðrum?“ Í dag veit ég að ég þarf ekki að gefa þessum hugsunum eins mikið vægi. Ég er nóg og hanna mitt líf á minn hátt, fyrir mig.

 

Ég hef farið í lífsþjálfun, en í einkatímum því mér finnst erfitt að hugsa mér að tala um mín mál á fundum. Þegar ég hef farið í lífsþjálfun hefur það reynst mér mjög gagnlegt. Það er gott að geta speglað hugsanir mínar og rætt við „ótengdan“ aðila um það sem ég er að velta fyrir mér. Ég nota stundum hugsananiðurhal en gæti gert meira af því. Mér finnst líka mjög áhugavert að hlusta á aðra í lífsþjálfun og ég læri alltaf eitthvað nýtt eða er minnt á eitthvað sem skiptir máli.

 

Að lokum vil ég vera duglegri að taka þátt í Samfélaginu. Ég hef kynnst góðum konum í gegnum prógrammið, þó ekki mörgum. Ég er ekki alltaf nógu dugleg að taka þátt, en mér finnst ég gæti bæði gefið meira af mér og fengið meira út úr því.

Að setja heilbrigð mörk

 

Mikilvægur hluti í heilbrigðum mannlegum samskiptum er að setja mörk. Það að setja mörk er í raun að vera skýrari, heiðarlegri og standa betur með sjálfum okkur í samskiptum við aðra. 

 

Sumar konur eiga erfitt með þetta af því þær vilja ekki valda vonbrigðum eða skapa óþægindi. En þegar við setjum ekki mörk förum við oft að ganga á orkuna okkar, segja já við of miklu og uppskerum þreytu, pirring eða vanlíðan.

 

Að setja heilbrigð mörk snýst ekki um að ýta fólki frá sér, heldur um að eiga betri og heiðarlegri samskipti við aðra. Að setja mörk getur verið að segja: „Ég kemst ekki,“ „Þetta hentar mér ekki,“ „Ég þarf meiri tíma fyrir mig,“ eða „Ég vil ekki að talað sé svona við mig.“ Að setja mörk hjálpar okkur að vernda orkuna okkar, virða eigin þarfir og láta aðra vita hvar mörkin okkar liggja. Þegar við æfum okkur í því verða samskipti okkar við aðra skýrari, hlýrri og betri.

Hvað fær athygli þína í sumar?

 

Sumarið er tíminn þar sem við slökum á, hittum fólk, förum meira út og brjótum upp vanann, rútínan breytist eða hverfur jafnvel. En sumarið er líka tíminn, þar sem athyglin okkar fer auðveldlega út um allt og stundum gleymum við að hlúa að okkur sjálfum.

Þess vegna er góð hugmynd að staldra við í byrjun sumars og spyrja: Hvað fær athygli mína í sumar? Verða það gæðastundir með fólkinu sem nærir mig eða mun öll orka mín fara í að þjóna öðrum? Verður þetta sumarið sem ég nota til að gera það sem mig langar og skipulegg það á mínum forsendum eða læt ég bara reka og veiti því orku og athygli sem togar mest í mig hverju sinni?

Við höfum líklega margar verið í þeirri stöðu að verja sumarfríinu í passa upp á alla hina, að allir fái gott að borða, börnin hafi eitthvað að uppbyggilegt gera - á fullu að búa til góðar minningar með fólkinu okkar. Það er fallegt og gott, en það er líka sjálfsagt að passa upp á að vinnan lendi ekki að mestu á einni manneskju - þér sjálfri.

Kannski er þetta sumarið þar sem þú velur að gefa sjálfri þér meiri athygli. Ekki út frá eigingirni — heldur af virðingu og ábyrgð á þínu eigin lífi og líðan.

Lífsþjálfaskólinn

 

Næsti hópur í Lífsþjálfaskólanum fer af stað 19. ágúst og útskrift er í janúar 2027.

 

Ætlar þú að vera með?

 

Ímyndaðu þér að byggja upp feril sem gefur þér frelsi, tilgang og getu til að breyta lífum — byrjaðu á þínu eigin og gefðu þér þá gjöf að læra.

 

Lífsþjálfaskólinn gæti verið svarið fyrir þig. Þar færð þú þekkingu og þjálfun í fræðum lífsþjálfunar sem munu nýtast bæði í starfi og lífi. 

 

Í náminu lærir þú aðferðafræði, öflug verkfæri og færni til að styðja fólk til aukinnar sjálfsvitundar, sterkari sjálfsmyndar, betri markmiðasetningar og raunverulegra breytinga. 

 

Á aðeins fjórum mánuðum geturðu lagt grunn að nýjum ferli, blómlegra starfi og sterkari útgáfu af sjálfri þér. Þekking og færni í lífsþjálfun getur nýst þér sem starfandi lífsþjálfi, í núverandi vinnu, sérstaklega ef þú vinnur við mannauðsmál eða sem stjórnandi, eða einfaldlega til að skapa þér sjálfri betra líf og læra að fara á eftir draumum þínum.

 

Upptaka af kynningarfundi um skólann hér

 

Vilt þú ná nýjum hæðum, persónulega, faglega og fjárhagslega?

Já, ég ætla að veðja á mig — skrá mig núna!

Nánari upplýsingar og skráning hér

Handbókin

 

Eitt af hugtökunum sem margar LMLP konur kannast við er „Handbókin”.

Handbókin er þessi ósýnilega bók sem við erum oft með í huganum um hvernig annað fólk á að haga sér. Hvernig makinn á að vera. Hvernig börnin eiga að bregðast við. Hvernig vinkonan á að svara. Hvernig samstarfsfólk á að koma fram. Hvernig aðrir eiga að sýna okkur skilning, virðingu, athygli eða stuðning.

 

Vandinn er að oft veit hitt fólkið ekki einu sinni að þessi handbók er til.

Þegar einhver fer ekki eftir „reglunum“ í handbókinni okkar, verðum við stundum sárar, pirraðar, svekktar eða upplifum höfnun. En í LMLP prógramminu lærum við að staldra við og spyrjum.

Er ég með ósagðar væntingar hér?

 

Er ég að bíða eftir að einhver annar hagi sér á ákveðinn hátt svo mér geti liðið betur?

 

Það þýðir ekki að við megum ekki hafa þarfir, mörk eða óskir. En það hjálpar að verða meðvitaðar um handbókina okkar, segja hlutina skýrar og taka ábyrgð á eigin líðan.

 

Þú getur spurt þig, hver er í handbókinni minni og hvaða reglur eru þar?

 

Hvaða ósögðu reglur er ég með fyrir aðra?

Hef ég sagt skýrt hvað ég þarf eða er ég að ætlast til að fólk viti það?

Get ég sleppt einhverri reglu sem er að taka frá mér orku?

 

Stundum verður lífið léttara þegar við lokum handbókinni - eða hendum henni í ruslið. Leyfum öðrum að vera mannlegir á meðan við stöndum skýrar með okkur sjálfum en munum að við getum ekki breytt öðrum, við getum einungis breytt okkur sjálfum.

Framúrskarandi ráðstefna 2027

 

Næsta vor á Íslandi með sérstöku mæðgnatilboði.

Framúrskarandi ráðstefnan er gott dæmi um hvernig mannleg samskipti og lifandi samfélag lyfta okkur upp. Þar hittast LMLP konur, læra, tengjast, fá innblástur og njóta þess að vera saman í gleði og góðri samveru.

 

Sjáðu myndband af Framúrskarandi 2026 hér fyrir neðan

 

Ráðstefnan er byggð upp í kringum sjálfsrækt, samveru, innblástur og gleði. Þar gefst konum tækifæri til að staldra við, hlaða batteríin, tengjast sjálfum sér betur og njóta þess að vera í kringum aðrar framúrskarandi konur.

 

Næsta Framúrskarandi ráðstefna verður haldin næsta vor á Íslandi. Nú þegar hafa á sjötta tug kvenna skráð sig og undirbúningurinn er hafinn.

 

Ef þú vilt bjóða dóttur þinni, tengdadóttur, móður eða tengdamóður með þér geturðu útvegað henni 10.000 kr. afslátt af miðanum. Miðaverð er nú 49.000 kr., en með mæðgnatilboðinu fær viðkomandi miða á 39.000 kr., svo framarlega sem þú ert sjálf með miða.
Þetta er kærkomið tækifæri til að deila þessari upplifun með konu sem þér þykir vænt um, skapa minningar saman og dýpka tengslin.

 

Ath. verð ferð hækkandi eftir því sem nær dregur ráðstefnu

 

Gefðu þér gjöf og skráðu þig.
Smelltu hér til að skrá þig á Framúrskarandi 2027 

Notaðu afsláttarkóðann mæðgur ef þú nýtir mæðgnatilboðið.

Ertu að leita að gjöf eða viltu gleðja sjálfa þig?

við seljum glæsilegar gæðavörur


Kíktu á úrvalið á síðunni okkar, þar finnur þú hágæða silkisettin Luxe by Linda, dagbækur, vatnsflöskur, peysur, derhúfu og spilin góðu.

 
Smelltu hér til að panta LMLP vörurnar þínar.

Smelltu hér til að panta LMLP vörurnar þínar

Rafrænt dagatal

Nú bjóðum við uppá þá nýjung að setja dagskrá mánaðarins, mánuð fram í tímann, beint inn í rafræna dagatalið þitt. Það er einfalt, þú velur það rafræna dagatal sem þú notar með því að smella á það hér að neðan og þá fara fundirnir sjálfkrafa inn á dagatalið þitt í tækinu þínu. Með von um að þessi nýjung nýtist ykkur vel.


SMELLA HÉR FYRIR RAFRÆNT DAGATAL