Book a Class

Fréttabréf mánaðarins

 

Í lok hvers mánaðar sendi ég ykkur fréttabréf næsta mánaðar og þá daga sem fundur er sendi ég áminningu samdægurs nema þegar fundur er snemma dags, þá kemur áminning degi fyrr. Þetta er fréttabréf næsta mánaðar og eins og alltaf í okkar dásamlega samfélagi er margt spennandi á boðstólum.

Kæra LMLP kona

 

Í maí er áherslan okkar á heilsu og vellíðan. Eins og þú veist kannski þá er það mér hjartans mál að hugsa vel um heilsuna. Ég legg áherslu á nægan svefn, hreyfingu, holla næringu og litlu venjurnar sem saman skapa góðan og heilsusamlegan lífsstíl. Ég trúi því að líkamleg og andleg heilsa haldist alltaf í hendur.

Mig langar líka að halda áfram að bæta upplifun þína af LMLP prógramminu og vil, eins og alltaf, fara fram úr væntingum þínum. Þess vegna er mér mikil ánægja að kynna fyrir þér Lifandi samfélag. Með því langar mig að fara aftur í kjarnann, eins og þetta var þegar ég byrjaði með prógrammið — í hlýjuna, nándina og persónulegu tenginguna sem hefur alltaf verið svo dýrmæt í okkar dásamlega samfélagi.

Lifandi samfélag snýst um mannleg samskipti. Um að hittast, tala saman frjálst, hlusta hver á aðra og eiga notalega stund saman. Mér finnst það mikilvægara en nokkru sinni fyrr að við eigum svona stundir saman í hraða nútímans, þar sem svo margt er orðið stafrænt og gervigreindin oft tilbúin með svör. Einmitt þess vegna þurfum við enn frekar á því að halda að vera í tengslum við raunverulegar manneskjur, finna stuðning, hlýju og nálægð.

Einu sinni í mánuði verð ég því með fund sem við köllum Lifandi samfélag, þar sem allt er í boði og allar sem vilja geta verið í mynd. Markmiðið er að gera stundina persónulegri, hlýrri og skemmtilegri. Mig langar sérstaklega að bjóða þér að mæta laugardaginn 16. maí, vera í mynd og eiga með mér og hinum LMLP konunum notalega stund með græna Lindudrykkinn. (Ég set uppskriftina inn hér fyrir neðan.) Þar getum við skálað fyrir heilsu og vellíðan og rætt saman um hvað sem ykkur langar að taka fyrir.

Vá hvað ég hlakka til að eiga þessa stund með ykkur.

Þegar þetta fréttabréf berst erum við á fullu í lokaundirbúningi fyrir Framúrskarandi konuna 2026 í Madrid. Fram undan eru yndislegir dagar og það eru hreinir töfrar í orkunni sem myndast þegar svona stór hópur kvenna kemur saman með það að markmiði að hafa gaman, vaxa og búa sér til betra líf. Ég trúi því af öllu hjarta að við náum meiri árangri þegar við erum saman í styðjandi samfélagi heldur en þegar við reynum að gera allt einar. Fylgstu endilega með okkur á samfélagsmiðlum næstu daga og upplifðu stemninguna með okkur. Það er líka von á sérstakri tilkynningu frá mér um framtíð Framúrskarandi — verður þetta síðasta ráðstefnan eða er kominn tími á breytingar?

Við höldum líka áfram með lífsþjálfunarfundi í maí og það gleður mig mikið að finna hvað þið hafið tekið vel í þessa áherslubreytingu. Með henni hafið þið fengið fleiri tækifæri til að komast í lífsþjálfun — og það skiptir máli, því lífsþjálfunin er kjarninn í prógramminu. Þar náið þið mestum framförum og finnið raunverulegar breytingar, hvort sem þið mætið sjálfar í þjálfun eða horfið á aðrar fá þjálfun.

Ég hlakka til að eiga með þér fallegan maí, þar sem við hlúum að heilsunni, finnum meiri vellíðan og njótum þess að vera saman í þessu yndislega samfélagi.

 
Hlý kveðja.
Ykkar, 

Linda Pétursdóttir

Eigandi og framkvæmdastjóri LMLP slf.
Master lífsþjálfi & viðskipta mentor
B.A í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði
Miss World 1988

Dagskrá í maí

 

Dagskráin í maí er þéttsetin við verðum með 6 fundi og þar af tvo aukafundi. Byrjendafund þar sem við bjóðum nýjar konur velkomnar og sýnum þeim hvernig þetta virkar allt saman, ég hvet ykkur allar til að mæta á byrjendafundi það er svo gefandi og skemmtilegt. Síðar í maí verður sérstakur VIP fundur með Drottningunum, en það eru konur sem hafa verið í prógramminu lengur en tvö ár. 

Gefðu þér tíma til að mæta á fund og njóta samverunnar með okkur.

    

Fimmtudagur 7. maí kl. 18:00 

Lífsþjálfun

 

Aukafundur!

Miðvikudagur 13. maí kl. 17:00

Byrjendur

 

Nyung!

Laugardagur 16. maí kl. 10:00

Lifandi samfélag

 

Miðvikudagur 20. maí kl. 17:00 

Lífsþjálfun

 

Aukafundur!

Fimmtudagur 21. maí kl. 17:00

VIP Drottningafundur

 

Miðvikudagur 27. maí kl. 17:00 

VIP - fundur

   
4 fundir á mánuði* eru innifaldir í áskrift, þar af 1 VIP fundur.
*fyrir utan júlí og desember vegna sumar- og jólafrís starfsmanna
 

Lifandi samfélag

 

Það er mér sönn ánægja að kynna fyrir ykkur Lifandi samfélag. Þetta er nýjung hjá okkur en um leið byggð á gömlum og dýrmætum grunni, því með þessu langar mig að fara aftur í kjarnann — eins og þetta var þegar ég byrjaði með LMLP prógrammið.

Lifandi samfélag snýst um mannleg samskipti. Það snýst um að hittast, tala saman frjálst, hlusta hver á aðra og eiga notalega stund saman. Mér finnst það mikilvægara en nokkru sinni fyrr að við eigum svona rými, sérstaklega á tímum þar sem svo margt er orðið stafrænt og gervigreindin alls staðar. Þá þurfum við enn frekar á því að halda að vera í tengslum við raunverulegar manneskjur, finna stuðning, hlýju og nálægð.

Margar ykkar sem hafa verið lengi í LMLP prógramminu hafa saknað þessara stunda þar sem við hittumst, allar í mynd, töluðum saman af einlægni og áttum hlýlega og persónulega samveru. Það myndaðist alltaf svo sérstök tenging þegar við gáfum okkur tíma til að vera raunverulega saman. Sú nánd og hlýja hefur alltaf verið mér mjög dýrmæt og er stór hluti af því sem gerir samfélagið okkar svona fallegt.

Ég finn það svo sterkt í hvert sinn sem við komum saman, hvort sem það er á fundum, ráðstefnunni Framúrskarandi eða öðrum hittingum á vegum LMLP Prógrammsins. Þegar LMLP konur koma saman skapast orka sem er engu lík. Við lyftum hver annarri upp, fáum ný sjónarhorn, styrk og innblástur. Ég trúi því af öllu hjarta að við náum meiri árangri þegar við erum hluti af styðjandi samfélagi heldur en þegar við reynum að gera allt einar.

Einu sinni í mánuði verðum við því með fund sem ég kalla Lifandi samfélag, þar sem allt er í boði og allar sem vilja geta verið í mynd. Markmiðið er að gera stundina persónulegri, hlýrri og skemmtilegri, þannig að við getum tengst enn betur og einfaldlega átt góða stund saman.

Mig langar sérstaklega að bjóða ykkur að mæta laugardaginn 16. maí kl. 10:00, vera allar í mynd og eiga með mér notalega og sérstaka stund. Og gerum þetta extra notalegt — tökum allar með okkur græna Lindu drykkinn, skálum fyrir heilsu og vellíðan og ræðum saman um hvað sem ykkur langar að taka fyrir.

Uppskrift af græna „Lindudrykknum"

 

Græni Lindudrykkurinn er hollur og næringarríkur heilsudrykkur, sem ég hannaði til að hreinsa og hressa líkamann. Hann er einfaldur í gerð þar sem hráefni á borð við spínat, avókadó og agúrku eru blönduð saman í blandara þar til drykkurinn er silkimjúkur. Gjörið svo vel og njótið.

 

Innihald:

1 lúka spínat

1 avakadó

1/3 agúrka

1/2 greipaldin eða 1 grænt epli

1 sm. engifer

safi úr 1 sítrónu

1 msk. góð olía (hörfræ, avakadó)

vatn eftir smekk (1 1/2 stórt glas).

aukaefni

 

AÐFERÐ:

Allt sett í blandara og þeytt saman þangað

til drykkurinn er orðinn silkimjúkur.

Komdu í lífsþjálfun 

- þar gerast töfrarnir

 

Eins og alltaf mælum við með því að þið mætið í lífsþjálfun, því þar geturðu náð þér í aukinn styrk, skýrari stefnu og meiri trú á þig sjálfa með stuðningi lífsþjáfans. Í lífþjálfun færð þú dýpri skilningi á því hvernig þér líður, af hverju þér líður þannig og hvaða áhrif það hefur á líf þitt. Með þeirri vitneskju verður auðveldara að takast á við áskoranir, rækta betri venjur og halda áfram veginn í átt að því lífi sem þú óskar þér. Þú mætir einfaldlega í lífsþjálfunartíma og réttir upp hönd.

Þetta er gott að hafa í huga þegar þú mætir á fundi:

Það er gott að vita hver munurinn er á fundi í Lifandi samfélagi og lífsþjálfunarfundum

 

→ Í Lifandi samfélagi erum við allar saman í mynd og þar geta allar talað frjálst um það sem þær vilja, hvort sem þær vilja taka til máls eða í spjallinu. Sú stund er hlý, skemmtileg og persónuleg, með fókus á tengingu, samveru og mannleg samskipti.

→ Á lífsþjálfunarfundum er fyrirkomulagið öðruvísi. Þar er ein kona í mynd með lífsþjálfanum og fær þjálfun með það mál sem hún vill vinna með. Það getur verið hvað sem er, eitthvað sem liggur henni á hjarta. Samtalið er hlýtt, einlægt og öruggt, en fókusinn er á það mál sem unnið er með hverju sinni. Lífsþjálfinn leiðir samtalið áfram með því að skapa gott rými, hlusta vel, spyrja spurninga og hjálpa konunni að sjá skýrar hvernig hugsanir hennar og tilfinningar hafa áhrif á líðan hennar og það sem hún gerir. Markmiðið er að hún fái nýja sýn á málið, finni sína eigin lausn og átti sig á næstu skrefum.

Það er dýrmætt þegar þær sem horfa á sýna konunni sem er að fá þjálfun stuðning og hvatningu í spjallinu. Við viljum þó forðast að gefa ráð, því það er hlutverk lífsþjálfans að leiða ferlið.


Báðar þessar stundir eru dýrmætar, hvor á sinn hátt. Lifandi samfélag gefur okkur hlýju, tengingu og samveru, en í lífsþjálfuninni förum við dýpra og þar gerast oft stærstu breytingarnar.

Viltu einkatíma í lífsþjálfun?

 

Í einkatíma eru það bara þú og lífsþjálfinn að vinna með þau mál sem brenna á þér. Þú getur bóka einkatíma hér það eru lausir tímar hjá Matthildi sem er menntaður lífsþjálfi frá Lífsþjálfaskólanum og starfsmaður LMLP.

 

Anna Jónsdóttir

 

Ég byrjaði í LMLP í janúar 2024 og sé alls ekki eftir því. Á þeim tíma vantaði mig eitthvað nýtt inn í lífið mitt. Ég var á mjög vondum stað þegar ég sá auglýsingu með Lindu þar sem hún talaði um allt sem mig langaði í. Þá ákvað ég að slá til, því mér fannst ég í raun engu hafa að tapa.

Það mikilvægasta sem ég hef lært í LMLP prógramminu er að setja sjálfa mig í fyrsta sæti og læra betur á tilfinningarnar mínar. Það hefur skipt mig miklu máli og hjálpað mér að öðlast meiri skilning á sjálfri mér.

Ég finn líka mikla breytingu á mér. Í dag er ég miklu öruggari með sjálfa mig, meira meðvituð og sit miklu betur í mér en áður.

Fljótlega eftir að ég byrjaði fór ég í lífsþjálfun til Lindu. Fyrst fannst mér það svolítið skrýtið og mér gekk erfiðlega  finna svörin. Ég fór eiginlega í vörn í byrjun. En eftir því sem tíminn leið varð upplifunin sífellt jákvæðari og ég fann hversu gott þetta gerði mér. Á þessum tíma var ég enn í fórnarlambshlutverkinu, en í dag myndi ég fara miklu oftar í lífsþjálfun, því það er svo dýrmætt að horfast í augu við sjálfa sig og vinna með það sem kemur upp.  

Það að hafa kynnst LMLP Prógramminu og Lindu sjálfri er ein besta gjöf sem ég hef gefið sjálfri mér.

Samfélagið er yndislegur staður til að tilheyra og það hefur verið svo gefandi og hvetjandi að kynnast fullt af konum sem eru á svipaðri vegferð og ég. Ef ég væri ekki með, þá væri lífið frekar tómt. 💕

 

Með kveðju,

Anna Jóns

Við mælum með

 

 

Að þið hugsið vel um andlega og líkamlega heilsu og gerið ramma eða plan um hvernig þið ætlið að fara að því. Gætið vel að því hvað þið borðið og drekkið en ekki síður að því hvaða efni þið horfið á og spyrjið ykkur hvort það sé að gera ykkur gott. 

 

Nú er komið vor á Íslandi og þá er góður siður að búa sér til nýja vana og losa sig við gamla vana sem þjóna ykkur ekki lengur. 

 

Þess vegna mælum við með:

  • Horfið á þáttinn um Grunnreglurnar fjórar inn í lotunni Næring, þyngdartap & uppskriftir
  • Hlustið á Podkastþátt nr. 258 um 5 bætiefni smelltu hér til að hlusta
  • Takið frá 1-2 tíma á viku í sjálfsrækt
  • Takið þátt í 28 daga heilsuáskorun –  smelltu hér til að kaupa en ef þú ert orðin VIP-Drottning þá er það innifalið
  • Drekkið 2 lítra af vatni á dag – og ef þig langar að drekka úr fallegum LMLP brúsa þá getur þú smellt hér

Kajabi komið í lag aftur

 

Í síðasta mánuði kom upp bilun hjá Kajabi sem hafði áhrif á aðgengi að Samfélaginu í appinu. Nú er sem betur fer búið að laga það og allt komið í rétt horf aftur.

Ef þú þarft aðstoð við eitthvað sem tengist aðganginum þínum eða hvernig þú finnur efnið hafðu þá endilega samband við okkur á skrifstofa@lindape.com. Þú getur líka pantað Örfund með starfsmanni LMLP með því að smella hér og fengið hjálp einfaldan hátt.

Við erum alltaf hér til að styðja þig.

Ertu að leita að gjöf eða viltu gleðja sjálfa þig?

við seljum glæsilegar gæðavörur


Kíktu á úrvalið á síðunni okkar, þar finnur þú hágæða silkisettin Luxe by Linda, dagbækur, vatnsflöskur, peysur, derhúfu og spilin góðu.

 
Smelltu hér til að panta LMLP vörurnar þínar.

Smelltu hér til að panta LMLP vörurnar þínar

Rafrænt dagatal

Nú bjóðum við uppá þá nýjung að setja dagskrá mánaðarins, mánuð fram í tímann, beint inn í rafræna dagatalið þitt. Það er einfalt, þú velur það rafræna dagatal sem þú notar með því að smella á það hér að neðan og þá fara fundirnir sjálfkrafa inn á dagatalið þitt í tækinu þínu. Með von um að þessi nýjung nýtist ykkur vel.


SMELLA HÉR FYRIR RAFRÆNT DAGATAL