Book a Class

Fréttabréf mánaðarins

 

Í lok hvers mánaðar sendi ég ykkur fréttabréf næsta mánaðar og þá daga sem fundur er sendi ég áminningu samdægurs nema þegar fundur er snemma dags, þá kemur áminning degi fyrr. Þetta er fréttabréf næsta mánaðar og eins og alltaf í okkar dásamlega samfélagi er margt spennandi á boðstólum.

Kæra LMLP kona

 

Þegar ég skrifa þetta sit ég úti í garði hér á Marbella og nýt þess að vera úti í náttúrunni, hlusta á fuglasönginn og láta sólina verma mig. Það minnir mig á hversu mikilvægt það er að njóta litlu augnablikana og því vil ég hvetja þig kæra LMLP kona að hægja aðeins á, hlusta betur á sjálfa þig og velja það sem nærir þig og lyftir þér upp. Yfirskrift júní mánaðar er Náttúran, núið og minna áreiti og mér finnst hún vera dýrmæt hvatning fyrir okkur allar.

 

Við lifum á tímum þar sem áreitið er mikið. Það er alltaf eitthvað að gerast, eitthvað sem kallar á athygli okkar, eitthvað sem við erum fylgjast með eða þurfum að bregðast við - og það getur tekið frá okkur mikla orku. 

 

Einmitt þess vegna er svo mikilvægt að staldra við, draga andann djúpt, sleppa tökunum og muna að stundum er það einfaldleikinn sem gefur okkur mest: fuglasöngur, ferskt loft, fjöllin, fjaran, kyrrðin og nokkur augnablik þar sem við þurfum ekki að gera neitt — bara vera.

 

Síðasti mánuður var fullur af orku og lífi hjá okkur hér í prógramminu. Þá fórum við aftur í kjarnann með Lifandi samfélagi og lífsþjálfunarfundum. Mér finnst ómetanlegt að finna hlýjuna og tenginguna sem myndast þegar við hittumst, tölum saman, hlustum hver á aðra - og erum saman í rauntíma. Við höldum að sjálfsögðu áfram á þessari braut í júní því þetta er nákvæmlega það sem LMLP prógrammið snýst um. raunverulegt og persónulegt samtal og að vinna saman að því að skapa okkur betra líf með lífsþjálfun.

 

Við erum líka enn í skýjunum eftir Framúrskarandi 2026 í Madrid. Hvílík gleði, glæsileiki og orka! Það er mögnuð upplifun og sannkölluð andans orkusprengja þegar LMLP konur koma saman til að vinna að markmiðum sínum. Við vorum eiginlega orðlaus og sögðum: „Þetta verður ekki toppað” en auðvitað ákváðum við samt að gera þetta aftur, en á annan hátt en í ár. Því ætlum við að halda Framúrskarandi 2027 á Íslandi og nú þegar hafa á sjötta tug kvenna skráð sig
Ég get varla beðið eftir að skapa magnaða upplifun með ykkur heima á Íslandi og við skulum allar byrja strax að leyfa okkur að hlakka til. Því eins og við LMLP konur segjum gjarnan: það verður að vera gaman!

 

Ég hlakka til að eiga með þér nærandi og gefandi júní  þar sem við höldum áfram að skapa lífið sem okkur langar að lifa í lifandi samfélagi kvenna þar sem virðing og stuðningur er grunnstefið.

 


Hlý kveðja.
Ykkar, 

Linda Pétursdóttir

Eigandi og framkvæmdastjóri LMLP slf.
Master lífsþjálfi & viðskipta mentor
B.A í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði
Miss World 1988

 

P.s. Ég býð upp á aukafund í byrjun júní fyrir þær ykkar sem voruð á Framúrskarandi 2026 í Madríd. Sjá nánar undir dagskrá mánaðarins.

Dagskrá í júní

 

Eins og ávallt verður nóg um að vera í hjá okkur í júní. Við verðum með lífsþjálfunarfundi og fundi í lifandi samfélagi. Auk þess verður sérstakur aukafundur fyrir þær sem fóru á ráðstefnuna Framúrskarandi 2026 þar sem við fylgjum eftir vinnunni sem þar fór fram.

Við hvetjum ykkur til að mæta á fundina, hlusta eða taka þátt því það er mikilvægur þáttur í sjálfsræktinni.

    

Fimmtudagur 4. júní kl. 12:00 

Lífsþjálfun

 

Aukafundur!

Fimmtudagur 4. júní kl. 17:00

Framúrskarandi konan 2026

Eftirfylgni fyrir þær sem tóku þátt í ráðstefnunni í Madrid

 

Miðvikudagur 10. júní kl. 17:00 

Lífsþjálfun

 

Sunnudagur 14. júní kl. 11:00

Lifandi samfélag

   

Miðvikudagur 24. júní kl. 17:00 

VIP - fundur

   
4 fundir á mánuði* eru innifaldir í áskrift, þar af 1 VIP fundur.
*fyrir utan júlí og desember vegna sumar- og jólafrís starfsmanna
 

Náttúran, núið og minna áreiti

 

Það er eitthvað einstakt við það að komast út í náttúruna, finna vindinn í andlitinu, heyra fuglasöng, horfa á fjöllin eða ganga meðfram fjörunni. Náttúran minnir okkur á að hægja á, anda dýpra og vera meira í núinu. Hún biður okkur ekki um að gera meira, standa okkur betur eða flýta okkur — hún býður okkur einfaldlega að vera.

 

Í heimi þar sem áreitið er stöðugt er dýrmætt að kúpla sig reglulega frá. Að leggja símann frá sér, fara í göngutúr, sitja í kyrrð eða leyfa huganum að róast getur haft mikil áhrif á líðan okkar. Þegar við gefum okkur tíma í náttúrunni hlöðum við batteríin, tengjumst líkamanum betur og fáum oft skýrari sýn á það sem skiptir okkur raunverulega máli.

 

Í júní hvetjum við þig til að gefa þér nokkur augnablik úti í náttúrunni — og njóta þess að vera.

Hver hefur áhrif á þig?

 

Inn í LMLP prógramminu tölum við gjarnan um að við séum blanda af þeim fimm einstaklingum sem við erum í mestum samskiptum við eða hlustum mest á. Hvort sem við tökum það bókstaflega eða ekki, þá er ljóst að fólkið í kringum okkur hefur áhrif á hugsanir okkar, líðan, orku og sjálfsmynd. Þetta getur líka verið fólk sem við þekkjum ekki persónulega, en hlustum mikið á og virðum — til dæmis á netinu, í sjónvarpi, útvarpi eða á samfélagsmiðlum.

 

Þess vegna er gott að staldra reglulega við og spyrja sig: Hverja er ég að hlusta á? Hvaða áhrif hefur þetta fólk á líðan mína? Eru einhver samskipti í lífi mínu sem draga úr mér orku? Er fólk í kringum mig sem gerir mig óöruggari, neikvæðari eða minni í mér? Þarf ég að vera í jafn miklum samskiptum við þetta fólk?  

Við þurfum ekki að dæma aðra til að velja okkur sjálfar. Stundum þurfum við einfaldlega að verða meðvitaðri um hvaða áhrif ákveðin samskipti hafa á okkur og hvað við erum að leyfa inn í huga okkar og hjarta. Þú mátt velja fólk sem lyftir þér, samtöl sem næra þig og umhverfi sem styður við þá konu sem þú vilt vera.

Elín Káradóttir

Hef náð innri ró og jarðtengingu

 

Ég byrjaði hjá Lindu í einkatímum í ágúst 2021. Ég vildi fá aðstoð hjá henni við að finna út hvernig ég gæti samræmt það að hafa mikið að gera sem fyrirtækjaeigandi án þess að þyngjast óeðlilega mikið. Í janúar 2022 ákvað ég að skrá mig í LMLP prógrammið og samhliða því var ég líka áfram í einkatímum.

 

Hugsa-líða-gera er án efa það mikilvægasta sem ég hef lært af öllu í LMLP. Með því hef ég náð innri ró sem ég þurfti að tileinka mér. Ég myndi líka segja að innri ró og jarðtenging sé helsta breytingin sem ég hef fundið á mér. Í kjölfarið af því fóru þó nokkur aukakíló. Fyrst og fremst er helsta breytingin þó að ég sit fastar í sjálfri mér.

 

Ég var í einkatímum í lífsþjálfun einu sinni í mánuði frá ágúst 2021 fram til sumarsins 2025, ásamt því að vera í LMLP prógramminu. Þetta hefur aðstoðað mig við að upplifa meiri ró þó svo að ég hafi mikið að gera í mínum fyrirtækjarekstri. Í raun hef ég stækkað og á sama tíma fengið meiri jarðtengingu.

 

Annað sem ég hef upplifað er að ég er hugrakkari við að fara mínar eigin leiðir og ekki eins hrædd við álit annarra á því hvað ég tek mér fyrir hendur.

 

Lífsþjálfun er magnað verkfæri til að ná tökum á daglegu lífi. Að fá lífsþjálfun aðstoðar okkur við að taka næstu skref til að gera það sem mann langar til að gera og líða vel á leiðinni.

Framúrskarandi ráðstefna 2027

 

Framúrskarandi ráðstefnan er einn af þessum viðburðum sem erfitt er að lýsa með orðum — þetta þarf eiginlega bara að upplifa. 

 

Sjáðu myndband af Framúrskarandi 2026 hér fyrir neðan

 

Ráðstefnan er byggð upp í kringum sjálfsrækt, samveru, innblástur og gleði. Þar fá konur tækifæri til að staldra aðeins við, hlaða batteríin, tengjast sjálfum sér betur og njóta þess að vera í kringum aðrar framúrskarandi konur.

 

Framúrskarandi 2026 í Madrid gekk svo vel að við erum enn í skýjunum. hvílík gleði, glæsileiki og orka. Við sögðum eiginlega: „Þetta verður ekki toppað.”

-En auðvitað ákváðum við samt að gera þetta aftur. 

Árið 2027 verður Framúrskarandi á Íslandi og það verður ótrúlega gaman að skapa þessa upplifun hér heima en á annan máta en áður. Nú þegar hafa á sjötta tug kvenna skráð sig og undirbúningur er farinn á fullt, það verður spennandi að sjá hvar ráðstefnan verður haldin - fylgstu með!

 

Vertu snögg og skráðu þig núna því verðið hækkar eftir því sem nær dregur. Í dag er miðaverð kr. 49.000 en mun hækka í 59.000

 

Forskráning hér

Mæðgnatilboð á Framúrskarandi 2027

 

Á ráðstefnunni í Madrid ræddu nokkrar ykkar við Lindu og óskuðuð eftir því að fá að bjóða dætrum ykkar með næst. Okkur fannst það svo falleg hugmynd að við ákváðum að bjóða sérstakt mæðgnatilboð á Framúrskarandi 2027 á Íslandi.

 

Ef þú vilt bjóða dóttur þinni, tengdadóttur, móður eða tengdamóður með þér getur þú útvegað henni 10.000 kr. afslátt af miðanum.

 

Skráningar verð er nú 49.000 kr, en með mæðgnatilboðinu fær viðkomandi miða á 39.000 kr., svo framarlega sem þú ert sjálf með miða.

Þetta er einstakt tækifæri til að deila þessari upplifun með konu sem þér þykir vænt um, skapa fallegar minningar saman, dýpka tengslin og bjóða henni inn í samfélag þar sem konur styðja hver aðra í að blómstra í lífi og starfi.

 

Þú skráir viðkomandi með því að smella hér og notar afsláttarkóðann:

mæðgur

 

Smelltu hér til að skrá þig á Framúrskarandi 2027

Viltu verða LMLP Ambassador?

 

 

Í maí kynntum við nýjung í LMLP samfélaginu: LMLP Ambassador.

 

Sem LMLP Ambassador getur þú boðið vinkonu, systur, samstarfskonu eða annarri konu í þínu lífi að kynnast LMLP prógramminu. Ef hún skráir sig í gegnum þinn persónulega hlekk færð þú einkatíma í lífsþjálfun hjá LMLP teyminu að gjöf. Við bjóðum mismunandi gjafir en byrjum með einkatíma í lífsþjálfun, að verðmæti 19.900 kr.

 

Þú getur boðið eins mörgum konum og þú vilt. Ef fleiri konur skrá sig í gegnum þig færð þú einfaldlega fleiri einkatíma. Hversu sniðugt?!

 

Nánari upplýsingar og skráning

VIP retreat í Marbella

- laust pláss

 

Það losnaði óvænt pláss í VIP retreat í Marbella í október, (sem seldist upp á innan við klst) - þannig ef þig langar með og vilt taka þátt í viðskipti & vellíðan í litlum hópi kvenna í rekstri þá hefur þú tækifæri til að skrá þig núna.

 

En ekki ofhugsa þetta, þú gætir misst af tækifærinu. 

 

Smelltu hér til að skrá þig

Ertu að leita að gjöf eða viltu gleðja sjálfa þig?

við seljum glæsilegar gæðavörur


Kíktu á úrvalið á síðunni okkar, þar finnur þú hágæða silkisettin Luxe by Linda, dagbækur, vatnsflöskur, peysur, derhúfu og spilin góðu.

 
Smelltu hér til að panta LMLP vörurnar þínar.

Smelltu hér til að panta LMLP vörurnar þínar

Rafrænt dagatal

Nú bjóðum við uppá þá nýjung að setja dagskrá mánaðarins, mánuð fram í tímann, beint inn í rafræna dagatalið þitt. Það er einfalt, þú velur það rafræna dagatal sem þú notar með því að smella á það hér að neðan og þá fara fundirnir sjálfkrafa inn á dagatalið þitt í tækinu þínu. Með von um að þessi nýjung nýtist ykkur vel.


SMELLA HÉR FYRIR RAFRÆNT DAGATAL